07. júní 2010

Nýr borprammi smíðaður hjá Ístaki hf með TRAC hliðarskrúfum

 
TRAC var fyrsti valkostur að sögn Ólafs Páls Sölvasonar rekstrarstjóra vélaverkstæðis Ístaks hf. 

Nýja borprammanum var gefið nafnið Ýmir við hátíðlega viðhöfn í öskufallinu í Mosfellsbæ föstudaginn 4 júní. Ýmir er nokkuð stærri en Þrymur og voru ýmsar endurbætur gerðar á honum. Ýmir kemst yfir að bora umtalsvert stærra flatarmál en Þrymur án þess að vera færður úr stað. Hann er með stærri miðju og einnig kemst borvagninn út fyrir hliðar og einnig frammfyrir til að bora.
 
Ólafur Páll Sölvason segir að af gefinni reynslu með TRAC hliðarskrúfurnar, sem hafa reynst frábærlega í Þrym, þá hafi fyrsti valkostur í Ými verið TRAC.
 
Við óskum starfsfólki Ístaks hjartanlega til hamingju með frábært verk.
 
 
 
Til baka