05. mars 2010

Aflhlutir ehf og KRAL hefja samstarf

Nú er loksins komið að því.
 
Fyrirtækið KRAL í Austurríki, sem er einna þekktast fyrir framleiðslu á hágæða snigildælum og nú einnig flæðinemum, hefur ákveðið að hefja samstarf við Aflhluti ehf um sölu og markaðssetningu á þeirra vörum á Íslandi.

Það sem er mjög áhugavert við framleiðslu KRAL eru olíueyðslumælar. Flæðinemarnir sem KRAL framleiðir byggja á áratugareynslu þeirra í framleiðslu á hágæða snigildælum, reynslu sem þeir nota í framleiðslu á  flæðinemunum.
 
þessir flæðinemar eru til að mynda notaðir fyrir olíueyðslumæla fyrir dieselvélar og eru þeir með nákvæmni hvorki meira né minna en uppá 0,1%. Þetta þýðir að nákvæmari mælingu er vart hægt að ná. Þar sem olíuverðið er einungis á uppleið, þá teljum við mikla möguleika fyrir útgerðir að ná fram umtalsverðum sparnaði með KRAL olíueyðslumælum.
 
KRAL getur boðið mæla fyrir allar stærðir af dieselvélum.
 
 
 
Hrafn og Björn með Martin Jones frá KRAL á milli sín.
Til baka