19. desember 2009

Aflhlutir ehf útvega Ístaki hf tvær TRAC hliðarskrúfur

 
Aflhlutir ehf. útvega Ístaki hf. tvær TRAC hliðarskrúfur fyrir borpramma sem Ístak hf. smíðaði í lager og þjónustudeild sinni við Bugðufljót 19 í Mosfellsbæ.

Um er að ræða tvær 80 KW skrúfur sem eru 600 mm í þvermál. Með skrúfunum eru Rexroth stimpil vökvamótorar, rexroth stjórnloki fyrir stiglausa stjórnun og einnig TRAC stjórnbúnaður.
Pramminn var sendur til Noregs í dýpkunarverkefni við bæinn Stamsund sem er í Lofoten í norður-Noregi.
 
 Við þökkum Ístaki hf. fyrir gott samstarf og óskum þeim til hamingju með þetta frábæra verkefni sem heppnaðist í alla staði mjög vel um leið og við vonumst til að áframhald verði á svipuðum verkefnum í framtíðinni.
 
 
 
 
 
                         Hydraulic Thrusters 24"-28"
Til baka