19. desember 2009
Aflhlutir ehf hefja samstarf við Fluid Controls Ltd.
Fluid Controls á Írlandi framleiðir hinar viðurkenndu SeaQuest fiskidælur sem eru að ryðja sér til rúms á markaðinum. Skipstjórar og útgerðarmenn í Noregi hafa uppgötvað hvaða kostir fylgja því að nota SeaQuest dælur.
Það er samdóma álit þeirra aðila sem nota SeaQuest dælur að þær skili mun betri gæðum á fiski úr hverju kasti, sem þýðir að sjálfsögðu hærra aflaverðmæti.
Hér á síðunni okkar eru upplýsingar um dælurnar með umsögn frá skipstjórum og verksmiðjustjórum víða um heim.
Einnig eru SeaQuest dælurnar útbúnar með stillihring, þannig að hægt er að stilla hlutfall á milli fisks og sjós sem dælt er. Þ.e. frá 50% vatn og 50% af fiski í 66% vatn og 34% af fiski.
Framleiddar eru 3 stærðir af dælum: 12" – 14" – 18"
Einnig framleiðir Fluid Controls vökvavindur fyrir glussaslöngur og fiskihosur.
Til baka